Volvo vinnuvélar
|
mán. 13. des. 2010
Volvo vinnuvélar merki um jákvæð teikn
Brimborg afhendir innan skamms stærstu hjólaskóflu sem atvinnutækjasvið fyrirtækisins hefur selt til Ístaks.
Volvo Construction Equipment, eða Volvo CE eins og vinnuvéladeild
Volvo er oft kölluð, leggur höfuðáherslu á gæði og öryggi við framleiðslu á vinnuvélunum. Það er í takt við hefðir Volvo en Volvo CE hefur um árabil verið leiðandi í verktakageiranum á heimsvísu í vinnuvélum.
Volvo L350F hjólaskóflan er sú öflugasta sem Volvo CE framleiðir og er gríðarlega traust og öflug vinnuvél. Þrátt fyrir stærð sína er hjólaskóflan snör í snúningum, þýð og stöðug sem leyfir henni að lyfta þungu fargi mjög hátt.
Með vinnuvél af þessu tagi er lítið mál að skipuleggja vaktakerfi fyrir hjólaskófluna sem getur þess vegna verið í notkun allan sólarhringinn í erfiðustu verkefnum sem finnast. Volvo vinnuvélarnar hafa sannað sig rækilega á Íslandi og stutt er síðan Volvo CE kom til landsins til að vinna
myndbönd um framkvæmdir á landinu í skugga gossins í Eyjafjallajökli. Þar störfuðu vinnuvélarnar við erfiðar aðstæður en rekstraröryggi þeirra reyndist framúrskarandi.
Fer til Noregs í verkefni
Í þetta skiptið mun hjólaskóflan þó ekki verða á Íslandi því Ístak hyggst nota Volvo L350F hjólaskófluna í verkefni í Noregi þar sem
Ístak hefur fengið stórt verkefni við gangnagerð við Þrándheim.
Volvo L350F hjólaskóflan er sannkallað ofurtæki. Hjólaskóflan er 50 tonn að þyngd og skóflan sjálf 7,1 rúmmetri að stærð og með hliðarsturtum. Mokstur við þröngar aðstæður, t.d. eins og í jarðgöngum, er því eins auðveldur og hægt er að hafa hann.
Eins og með aðrar vinnuvélar frá Volvo þá er það öryggið sem er í fyrirrúmi, öryggi starfsmanna og ekki síður rekstraröryggi. Í útboðsverkefnum sem þessum skiptir tími verulegu máli og því áríðandi að losun á lausu efni gangi sem best fyrir sig svo hægt sé að stilla upp fyrir næstu borun og sprengjuhleðslur.
Vonast er til þess að íslenskur verktakaiðnaður sé með erlendum verkefnum sem þessum að styrkja sig og eru reyndar ýmis teikn á lofti um að verktaka á Íslandi muni aukast á næstunni. Vegaframkvæmdir eru fyrirhugaðar og ýmis stór verkefni hafa verið í biðstöðu sem vonandi fer að losna um.
Verkefnastaðan hjá Ístaki er hinsvegar nokkuð góð miðað við aðstæður. Fyrirtækið er með stór verkefni í Grænlandi og Noregi en einnig á Jamaíka þar sem verið er að byggja 14 hús í 18. aldar stíl sem ætluð verða farþegum á skemmtiferðaskipum.
Atvinnutækjasvið
Brimborgar þakkar Ístak fyrir viðskiptin og óskar Ístaki um leið til hamingju með kaupin á nýrri Volvo L350F hjólaskóflu.