Leitaðu

Smelltu á flokk
22. febrúar 2012

Volvo CE frétt 

Volvo vinnuvélar | fim. 17. feb. 2011

Ístak festir kaup á stórri Volvo hjólaskóflu vegna framkvæmda við Búðarhálsvirkjun

Ístak gerir annan samning við Brimborg um kaup á L350F hjólaskóflu.
Ístak hefur fest kaup á annarri Volvo L350F til að nota við gangnagerð, í þetta skiptið á Íslandi. Volvo L350F hjólaskóflan er fast að 50 tonnum að þyngd og er hún því sú stærsta sem framleidd er af Volvo vinnuvélum. Skammt er síðan Ístak keypti eins hjólaskóflu fyrir verkefni í Noregi vegna gangnagerðar við Þrándheim.

Um gríðarlega trausta og öfluga vinnuvél er að ræða og mun hjólaskóflan vera afar þægileg í allri umgengni, lipur en þó afar stöðug sem gerir henni kleift að eiga við mikið farg.

Brimborg mun afhenda hjólaskófluna í byrjun mars en fram að því vinnur Ístak hörðum höndum að undirbúningi verkefnisins við Búðarhálsvirkjun.

Hjólaskóflan verður notuð við mokstur í gangnagerð en frá Sporðöldulóni verður aðrennslisskurður inn að Búðarhálsi þaðan sem vatnið fer um 4 km löng aðrennslisgöng að stöðvarhúsinu. Með hjólaskóflunni kemur 7,1 m3 Gjestad skófla með hliðarsturtum til þess að auðvelda mokstur í jarðgöngum við þröngar aðstæður.

Skófla með hliðarsturtu auðveldar verulega þá vinnu að koma frá efninu sem losnar frá stálinu og vinnst við það mikill tími og þar af leiðandi sparnaður. Þannig er styttra í að borvagn og mannskapur komist aftur inn í göngin til að sprengja á ný.

Áreiðanleiki Volvo vinnuvéla er líka afar mikilvægur því við verk sem þessi er unnið allan sólarhringinn á vöktum og því er lykilatriði að nýting á tækjum sé í hámarki.

Nútímaleg vinnuvél

Volvo er leiðandi í öryggi í vinnuvélum ekki síður en í fólksbílum. Með öryggi starfsmanna í huga hefur verið farið sérstaklega yfir öryggisatriði. Mörg smáatriði stuðla að miklu öryggi en einnig þægindum stjórnandans. CDC stjórnun Volvo er einskonar þægindastjórnun og má í því samhengi til að mynda nefna dempara á gálga og bakkmyndavél en einn áhugaverðasti búnaðurinn er stýripinni sem frelsar stjórnanda vélarinnar frá því stýra vélinni með stýrishjóli á meðan unnið er við mokstur.

Erfiðleikar vonandi að baki í verktakaumhverfi

Starfsumhverfi verktaka á Íslandi hefur verið gríðarlega erfitt undanfarin ár. Mikil þensla ár eftir ár var undanfari gríðarlegs samdráttar sem hefur haft víðtæk áhrif í landinu. Eins og Brimborg hefur flutt fregnir af áður hefur eitthvað verið að rofa til í starfsumhverfi verktaka og enn sjást ýmist teikn þar um.

Til að mynda eru Volvo L350F hjólaskóflurnar sem atvinnutækjasvið Brimborgar hefur selt Ístaki þær stærstu hingað til.

Starfsfólk Brimborgar óskar Ístaki ehf enn og aftur til hamingju með kaupin á nýrri Volvo L350F hjólaskóflu.

Nýjar Volvo vinnuvélar


Volvo uppfyllir þarfir þínar fyrir traustan og skilvirkan rekstur með breiðu framboði vinnuvéla. Volvo vinnuvélar eru heimsþekktar fyrir áreiðanleika og endingu. Ástæðan er krafa hönnuða Volvo að framleiðslan taki mið af rekstraröryggi, hagkvæmni, endingu og þægindum. Stjórnendur treysta Volvo. Veldu Volvo vinnuvélar.

Notuð atvinnutæki

Smelltu hér og skoðaðu notuð atvinnutæki sem eru í boði hjá Brimborg, Bíldshöfða 6.

Um Brimborg

Tengdir hlekkir


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli