Leitaðu

Smelltu á flokk
22. febrúar 2012

Volvo CE frétt 

Volvo vinnuvélar | fim. 3. mar. 2011

Ístak fær Volvo L350F hjólaskóflu afhenta í Noregi

Við afhendingu hjólaskóflunnar, frá vinstri til hægri: Jón Þór Þorvaldsson, Sigurður Þór Jónsson , Ólafur Árnason starfsmaður Brimborgar og Bjarki Jónsson.
Í Tosbotn í Noregi liggur vegur utan í brattri hlíð sem talin er fremur óörugg. Snjóflóð og grjóthrun getur þar verið talsvert, í það minnsta nægjanlegt til þess að ákveðið hefur verið að ráðast í gangagerð. Ístak fékk verkið og keypti meðal annars Volvo L350F hjólaskóflu til þess að moka lausu efni úr göngunum eftir hverja sprengingu.

Hjólaskóflan er sú stærsta sem Brimborg hefur selt og var hún afhent fyrir helgina í nokkrum kulda í Tosbotn í Noregi. Volvo hjólaskóflan er 50-56 tonn á þyngd, skilar 535 hestöflum og er útbúin 7,1 rúmmetra skóflu með hliðarsturtum sem flýtir verulega fyrir þegar efni er losað frá bergstálinu og það flutt úr göngunum.

Vegstæðið þar sem vinnan fer fram er ekki ólík þeim aðstæðum sem eru við Óshlíðar veg fyrir vestan. Áhættusamt getur verið að fara um veginn og því er um mikla samgöngubót að ræða fyrir svæðið.

Reiknað er með að um 250 þúsund rúmmetrar af efni verði fluttir úr göngunum og er Volvo L350F hjólaskóflan lykillinn að því að það gangi hratt og örugglega fyrir sig.

Starfsfólk Brimborgar óskar Ístaki til hamingju með hjólaskófluna og óskar þeim góðs gengis við þetta viðamikla verk.

Nýjar Volvo vinnuvélar


Volvo uppfyllir þarfir þínar fyrir traustan og skilvirkan rekstur með breiðu framboði vinnuvéla. Volvo vinnuvélar eru heimsþekktar fyrir áreiðanleika og endingu. Ástæðan er krafa hönnuða Volvo að framleiðslan taki mið af rekstraröryggi, hagkvæmni, endingu og þægindum. Stjórnendur treysta Volvo. Veldu Volvo vinnuvélar.

Notuð atvinnutæki

Smelltu hér og skoðaðu notuð atvinnutæki sem eru í boði hjá Brimborg, Bíldshöfða 6.

Um Brimborg

Tengdir hlekkir


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli