Ístak fær afhenta Volvo L350F hjólaskóflu að Búðarhálsi
Teitur Gústafsson innkaupastjóri Ístak og Ólafur Árnason frá Brimborg við Brimborg þegar vélin var tilbúin til flutnings.
Ístak fékk afhenta Volvo L350F hjólaskóflu á dögunum og við afhendinguna var farið í að kenna stjórnendum vélarinnar, verkstæðisformanni og verkstjórum á vinnuvélina. Við afhendingu á vél sem þessari er farið ítarlega í gegnum stillingar á stjórnbúnaði, aðkomu að þjónustustöðum eins krafa er gerð um hjá Volvo Construction Equipment.
Framkvæmdinni við hina 80 MW Búðarhálsvirkjun er skipt í þrjá hluta, stíflugerð, gangagerð og stöðvarhús. Kaldakvísl og Sporðöldukvísl verða stíflaðar austan Búðarháls og vatni veitt um göng gegnum Búðarháls að stöðvarhúsi vestan til í hálsinum og þaðan út í Sultartangalón.
Kemur nýja Volvo hjólaskóflan til með að moka efni út úr 4 km löngum göngum á verktímanum.
Brimborg óskar starfsmönnum Ístak til hamingju með hina glæsilegu 56 tonna Volvo hjólaskóflu og vonast starfsfólk Brimborgar til að framkvæmdir muni ganga vel.
Nýjar Volvo vinnuvélar
Volvo uppfyllir þarfir þínar fyrir traustan og skilvirkan rekstur með breiðu framboði vinnuvéla. Volvo vinnuvélar eru heimsþekktar fyrir áreiðanleika og endingu. Ástæðan er krafa hönnuða Volvo að framleiðslan taki mið af rekstraröryggi, hagkvæmni, endingu og þægindum. Stjórnendur treysta Volvo. Veldu Volvo vinnuvélar.