Volvo vinnuvélar
|
þri. 19. júl. 2011
Norðurál fær afhenta nýja glæsilega Volvo L90F hjólaskóflu
Volvo L90F hjólaskófla í mokstri
Nú nýverið fékk Norðurál afhenta nýja Volvo L90F hjólaskóflu. Um er að ræða rúmlega 15 tonna hjólaskóflu sem verður notuð í ýmis verkefni hjá Norðurál.
Hjólaskóflan er með D6E 175 hö, Volvo vél og nær L90F hjólaskóflan að keyra á allt að 46 km hraða. Er hér á ferðinni mikill vinnuþjarkur sem hefur marg sannað sig við ýmsar erfiðar aðstæður hér á landi. Skóflan sem fylgir vélinni er 2,7 m3 með beinum boltuðum skera.
Er hjólaskóflan mjög vel útbúin í alla staði en það helsta mætti nefna, auka vinnuljós er vísa aftur og Xenon ljós er vísa fram, AC lofkæling, bakkmyndavél með skjá í mælaborði, auka hljóðeinangrun í húsi, loftfjaðrandi sæti, útsláttur á hífingu og skóflu, vökvahraðtengi fyrir skóflu, BSS dempari á gálga, 100% driflæsing á framöxli, sjálfvirk smurstöð, bakkviðvörun og margt fleira. Allt miðast þetta við að stjórnanda vélarinna líði sem allra best í vinnunni.
Öryggi er eitt af aðalmerkjum Volvo CE í sinni framleiðslu og þar fellur áður upptalinn búnaður sem er í hjólaskóflunni vel inn í myndina þar sem vellíðan stjórnenda vinnuvéla hefur mikil áhrifi á einbeitingu og ánægju sem leiðir til meira öryggis á vinnustaðnum.
Viljum við hjá Brimborg óska starfsmönnum Norðuráls til hamingju með nýju Volvo vinnuvélina og vonumst til að L90F hjólaskóflan eigi eftir að standa sig vel í þeim verkefnum sem henni verður úthlutað.