Volvo vinnuvélar
|
fös. 7. okt. 2011
Vegagerðin fær afhenta Volvo L60F hjólaskóflu
Á mynd sem tekin var við afhendingu Volvo hjólaskóflunnar eru frá vinstri þeir Richard A. Hansen Deildarstjóri, Ólafur Árnason frá Brimborg, síðan þeir Gísli Einar Sverrisson, Herbert Harðarson, Pétur I Ásvaldsson og Þórarinn G.Ólafsson frá Vegagerðinni.
Vegagerðin fékk í vikunni formlega afhenta nýja Volvo L60F hjólaskóflu sem verður notuð á Patreksfirði. Kemur hjólaskóflan til með að vera nýtt í ýmis þjónustuverkefni hjá Vegagerðinni sem til falla í næsta nágrenni Patreksfjarðar. Um er að ræða mjög fjölhæfa og vel útbúna 13 tonna hjólaskóflu. Kemur hjólaskóflan með 1,8 m3 skóflu sem er með boltuðum skerum. Hjólaskóflan er eins og áður sagði vel útbúin, með dempara á gálga, auka glussavirkni fyrir ýmsan vökvadrifin aukabúnað, sjálfvirku smurkerfi, brettum yfir hjólum (full cover). Á ökumannshúsi eru öflug Xenon ljós ásamt góðum vinnuljósum er vísa aftur.
Ökumannshúsið er eitt af aðalsmerkum Volvo CE, en mikið er lagt upp úr að ökumanni líði sem allra best við sín daglegu störf. Það að ökumanni vinnuvélarinnar líði sem best við sín störf gerir það að verkum að afköst, einbeiting og öryggi eykst á vinnustaðnum. Í ökumannshúsinu er AC loftklæing, loftfjaðrandi fjölstillanlegt ökumannssæti, bakk myndvél, bakkflauta, útvarp með CD, stillanlegt stýri og allt aðgengi að stjórntækjum Volvo hjólaskóflunnar með besta móti. Útsýni úr ökumannshúsi hefur verið bætt allan hringinn, en það án efa eykur öryggi stjórenda vélarinnar.
Mótorinn í hjólaskóflunni er D6E sem er 156 hestöfl. Allt aðgengi að þjónustustöðum á vélinni er mjög gott, enda eru hliðarlúgur yfir mótor á vél stórar og auðvelt að opna þær. Öndunarsíur eru á skiptingu, hásingum, hráolíutank og glussatank. Hjá Volvo Ce er mikil áhersla lögð á umhverfisvæni, bæði þarf hjólaskóflan að uppfylla mengunarstaðla og einnig fer framleiðsla vinnuvélarinnar fram í verksmiðju þar sem unnið er samkvæmt umhverfisstaðlinum ISO 14001.
Brimborg óskar Vegagerðinni og starfsmönnum starfstöðvar á Patreksfirði til hamingju með nýju Volvo L60F hjólaskófluna með ósk um að vélin komi til með að reynast Vegagerðinni fyrir vestan vel á komandi árum.