Volvo vinnuvélar
|
mán. 17. des. 2007
Ný Volvo L180F hjólaskófla komin í Vatnsskarðsnámur
Vatnsskarðsnámur Alexander Ólafsson ehf fékk nýlega afhenta nýja og öfluga Volvo L180F hjólaskóflu frá Brimborg.
Í haust fjárfesti námufyritækið Vatnsskarðsnámur Alexander Ólafsson ehf. í nýrri Volvo L180F hjólaskóflu í hinum nýja F-flokki, sem nýlega var kynntur hjá Volvo. Þetta er fimmtánda hjólaskóflan sem fyrirtækið festir kaup á enda þörf á miklum afköstum um þessar mundir.
Umfangsmikil starfsemi
Fyrirtækið var stofnað í október 1993 og er í eigu fjölskyldu Alexanders Ólafssonar. Félagið sinnir námurekstri undir Háuhnjúkum við Krísuvíkurveg, í námum sem kallast Vatnsskarðsnámur, en hið landfræðilega Vatnsskarð er rétt suðaustan við námurnar. Fyrirtækið sinnir mikilvægri þjónustu við höfuðborgarsvæðið, þ.e. efnissölu til byggingarverktaka, jarðvegsverktaka, vörubílstjóra, almenna húsbyggjendur og aðra aðila. Í námunum á sér stað efnisvinnsla, þ.e. mölun og flokkun efnis til gatnagerðar, garðavinnu, framleiðslu á steinsteypu og fleiru.
Nýja vélin afhent
Þeir bræður, Ellert K. Alexandersson, framkvæmdastóri, og Alexander G. Alexandersson, stilltu sér upp með Ólafi Árnasyni, sölu- og tækniráðgjafa hjá atvinnutækjadeild Volvo í Brimborg, er vélin var afhent. Að sjálfsögðu létu guttarnir hans Ellerts sig heldur ekki vanta við þetta tækifæri. Við hjá Brimborg óskum þeim til hamingju með hina nýju og glæsilegu Volvo L180F hjólaskóflu.
Nánari upplýsingar