Leitaðu

Stjórnarháttayfirlýsing Prenta þessa síðu

21. maí 2012

Stjórnarháttayfirlýsing er gerð með það markmiði að styrkja innviði Brimborgar og auka gagnsæi. Hún felur m.a. í sér aukna ábyrgð fyrirtækisins gagnvart hluthöfum, viðskiptavinum, starfsmönnum, birgjum og samfélaginu í heild. Stjórnarháttayfirlýsing Brimborgar er vistuð í gæðakerfi fyrirtækisins (HRM-L-27) og einnig á heimasíðu þess undir stjórn – og aðalskipurit, ásamt starfsreglum stjórnar (HRM-L-25) og starfskjarastefnu (HRM-L-26).   

  1. Tilvísanir í þær reglur um stjórnarhætti sem félagið fylgir eða ber að fylgja samkvæmt lögum og hvar slíkar reglur eru aðgengilegar almenningi.
    Félaginu ber ekki lagalega skylda til að fylgja reglum um stjórnarhætti en hefur samt sem áður til hliðsjónar leiðbeinandi reglur um Stjórnarhætti fyrirtækja sem urðu til úr samstarfi Viðskiptaráðs Íslands, Kauphallar Íslands og Samtaka atvinnulífsins. Góðir stjórnarhættir eru nú aðgengilegir í 3. útgáfu frá 18.06.2009 á heimasíðu Verslunarráðs Íslands. http//www.vi.is.

  2. Hvort Brimborg víki frá hluta reglna skv. lið 1. eða beiti engum ákvæðum þeirra. Greina skal frá ástæðum frávika og þeim úrræðum sem gripið var til í stað þeirra.
    Félagið hefur ofangreindar reglur til hliðsjónar og því ekki nauðsynlegt að telja upp þau ákvæði sem það beitir ekki.

  3. Lýsing á helstu þáttum innra eftirlits og áhættustýringu Brimborgar í tengslum við samninga reikningskila.
    Brimborg ehf var fyrst bílaumboða til að fá alþjóðlega gæðavottun ISO 9001 fyrir gæðastjórnunarkerfi sitt. Vottunin nær yfir starfssemi Brimborgar í Reykjavík og á Akureyri. Nokkrar nýlegar starfsstöðvar eru í vottunarferli. Innri endurskoðendur framkvæma reglulega innri úttektir á gæðastjórnunarkerfinu sem og að einnig eru framkvæmdar ytri úttektir á gæðastjórnunarkerfinu af starfsmönnum Vottunar hf. Endurskoðendafyrirtækið Deloitte sér um endurskoðun á fyrirtækinu árlega.

  4. Gildi félagsins, siðareglur og stefna um samfélagslega ábyrgð.
    Gildi félagsins, siðareglur og stefna um samfélagslega ábyrgð er að finna í gæðastefnu félagsins sem vistuð er í gæðahandbók og á vef félagsins.

  5. Lýsing á samsetningu og starfsemi stjórnar, framkvæmdastjórnar og undirnefnda stjórna.
    Í stjórn Brimborgar sitja fimm í aðalstjórn, stjórnarformaður og fjórir meðstjórnendur. Stjórn Brimborgar kemur saman að meðaltali einu sinni í mánuði en oftar ef þurfa þykir. Stjórnin ræður forstjóra, ákveður starfskjör hans og veitir prókúruumboð. Stjórnin starfar skv. starfsreglum stjórnar Brimborgar þar sem kveðið er ítarlega á um störf hennar.

  6. Fyrirkomulag skipunar nefndarmanna undirnefnda.
    Stjórn stofnar til undirnefnda og skipar stórnarmenn og aðra starfsmenn þeirra eins og við á hverju sinni en eins og stendur eru ekki skilgreindar undirnefndir starfandi.

  7. Upplýsingar um fjölda stjórnarfunda og funda undirnefnda og mætingu.
    Stjórnarfundir eru haldnir mánaðarlega, þriðja fimmtudag í hverjum mánuði. Einn fundur fellur niður á ári vegna orlofs. Fundir undirnefnda á ekki við sbr. grein 6.

  8. Hvar megi nálgast starfsreglur stjórnar og undirnefnda.
    Starfsreglur stjórnar (HRM-L-25), starfskjarastefna (HRM-L-26) og stjórnarháttayfirlýsing Brimborgar (HRM-L-27) eru vistaðar í gæðakerfi fyrirtækisins og einnig á heimasíðu þess undir stjórn – og aðalskipurit.

  9. Upplýsingar um stjórnarmenn.

    - - -

    Nafn, fæðingardagur og heimilisfang
    Jóhann J. Jóhannsson, 02. júní 1938, Malarási 1, 110 Reykjavík
    Menntun, aðalstarf og starfsferill
    Bifvélavirkjameistari frá Iðnskólanum í Reykjavík, 1965
    Stofnandi Brimborgar og forstjóri frá 1964 – 1999
    Stjórnarformaður frá 1999 til dagsins í dag.
    Hvenær stjórnarmaður settist að í stjórn fyrirtækisins
    Hefur setið í stjórn Brimborgar frá stofnun fyrirtækisins
    Önnur trúnaðarstörf, t.a.m. stjórnarseta í öðrum félögum
    Engin
    Eignarhlutir í félaginu sem og í öðrum tengdum félögum
    Jóhann á 33,42% hlut í Brimborg ehf
    Önnur hagsmunatengsl við félagið svo sem kaupréttarsamningur eða aðilar að umbunarkerfi
    Nei, en mögulegt í samræmi við starfskjarastefnu
    Hagsmunatengsl við helstu viðskipta- og samkeppnisaðila félagsins
    Engin

    - - -

    Nafn, fæðingardagur og heimilisfang
    Þorsteinn Arnórsson, 27. nóvember 1981, Hæðargarður 40, 108 Reykjavík
    Menntun, aðalstarf, starfsferill
    Rafvirki, Fjölbrautarskólanum í Breiðholti 2004
    B.s. viðskiptafræði – fjármál, Háskólinn í Reykjavík 2007
    Fjármálastjóri KFUM og KFUK á Íslandi 2007 – 
    Kaupþing hf, fyrirtækjaráðgjafi 2005-2007 (með námi)
    Hvenær stjórnamaður settist að í stjórn fyrirtækisins
    Þorsteinn settist í stjórn Brimborgar 1. júní 2011
    Önnur trúnaðarstörf, t.a.m. stjórnarseta í öðrum félögum.
    Engin
    Eignarhlutir í félaginu sem og í öðrum tengdum félögum.
    Þorsteinn á ekki hlut í Brimborg ehf en faðir hans, Arnór Jósefsson, á 16,13% hlut í félaginu
    Önnur hagsmunatengsl við félagið svo sem kaupréttarsamningur eða aðilar að umbunarkerfi
    Nei, en mögulegt í samræmi við starfskjarastefnu
    Hagsmunatengsl við helstu viðskipta- og samkeppnisaðila félagsins
    Engin

    - - -
     
    Nafn, fæðingardagur og heimilisfang
    Margrét Egilsdóttir, 9. júlí 1942, Malarási 1, 110 Reykjavík
    Menntun, aðalstarf, starfsferill
    Gagnfræðapróf frá Gagnfræðaskóla Austurbæjar, 1959.
    Aðstoðarmaður forstjóra Brimborgar frá 1964 – 1999
    Aðstoðarmaður stjórnarformanns frá 1999-dagsins í dag
    Hvenær stjórnamaður settist að í stjórn fyrirtækisins
    Margrét var varamaður í stjórn frá 1999 – 2010
    Settist að í aðalstjórn frá 2011
    Önnur trúnaðarstörf, t.a.m. stjórnarseta í öðrum félögum.
    Engin
    Eignarhlutir í félaginu sem og í öðrum tengdum félögum.
    Margrét á 13,26% hlut í Brimborg ehf
    Önnur hagsmunatengsl við félagið svo sem kaupréttarsamningur eða aðilar að umbunarkerfi
    Nei, en mögulegt í samræmi við starfskjarastefnu
    Hagsmunatengsl við helstu viðskipta- og samkeppnisaðila félagsins
    Engin

    - - -

    Nafn, fæðingardagur og heimilisfang
    Egill Jóhannsson, 5. júní 1963, Malarási 8, 110 Reykjavík
    Menntun, aðalstarf, starfsferill
    Viðskiptafræðingur Cand. Oecon, 1991, HÍ
    Stúdent frá Menntaskólanum við Sund, 1983
    Forstjóri Brimborgar frá 1. maí 1999 – dagsins í dag.
    Markaðsstjóri Brimborgar frá 1991 – 1999
    Forstöðumaður upplýsingatæknideildar Brimborgarfrá 1983 – 1991
    Hvenær stjórnamaður settist að í stjórn fyrirtækisins
    Egill settist að í aðalstjórn Brimborgar 1999.
    Önnur trúnaðarstörf, t.a.m. stjórnarseta í öðrum félögum.
    Kollaleira ehf, eigandi og stjórnarformaður
    BR fasteignafélag ehf, stjórnarformaður
    Eignarhlutir í félaginu sem og í öðrum tengdum félögum.
    Egill á 27,05% hlut í Brimborg ehf
    Önnur hagsmunatengsl við félagið svo sem kaupréttarsamningur eða aðilar að umbunarkerfi
    Nei, en mögulegt í samræmi við starfskjarastefnu
    Hagsmunatengsl við helstu viðskipta- og samkeppnisaðila félagsins
    Engin

    - - -
     
    Nafn, fæðingardagur og heimilisfang
    Margrét Rut Jóhannsdóttir, 21. september 1965, Vesturási 51, 110 Reykjavík
    Menntun, aðalstarf, starfsferill
    Starfsmannastjórnun frá Endurmenntun HÍ – 2005
    Stúdent frá Verslunarskóla Íslands 1985
    Framkvæmdastjóri mannauðs- og gæðasviðs 2010 og til dagsins í dag
    Framkvæmdastjóri starfsmannasviðs frá 2006 – 2010
    Launa- og starfsmannafulltrúi 1985-2005
    Gjaldkeri nýrra og notaðra bíla 1997 – 1998 (ásamt launa og starfsm.fulltrúa)
    Hvenær stjórnamaður settist að í stjórn fyrirtækisins
    Margrét var varamaður í stjórn Brimborgar frá 1999-2010
    Settist að í aðalstjórn Brimborgar 2011
    Önnur trúnaðarstörf, t.a.m. stjórnarseta í öðrum félögum.
    Engin
    Eignarhlutir í félaginu sem og í öðrum tengdum félögum.
    Margrét á 8,28% hlut í Brimborg ehf
    Önnur hagsmunatengsl við félagið svo sem kaupréttarsamningur eða aðilar að umbunarkerfi
    Nei, en mögulegt í samræmi við starfskjarastefnu
    Hagsmunatengsl við helstu viðskipta- og samkeppnisaðila félagsins
    Engin

    - - - 
  10.  

    Aðrir hluthafar sem ekki eru í stjórn eru:

     

    Nafn, fæðingardagur og heimilisfang

    Aníta Ósk Jóhannsdóttir, 16. maí 1980, Lambaseli 10, 109 Reykjavík

    Menntun, aðalstarf, starfsferill

    BS próf í ferðamálafræðum og ensku 2006, HÍ

    Starfsmanna- og launafulltrúi hjá Brimborg ehf frá 2007 til dagsins í dag

    Icelandair (flugfreyja) með námi 2005-2006

    Húsasmiðjan með námi 2001-2004

    Eignarhlutir í félaginu sem og í öðrum tengdum félögum.

    Aníta á 1,86% hlut í Brimborg ehf

    Önnur hagsmunatengsl við félagið svo sem kaupréttarsamningur eða aðilar að umbunarkerfi

    Nei, en mögulegt í samræmi við starfskjarastefnu

    Hagsmunatengsl við helstu viðskipta- og samkeppnisaðila félagsins

    Engin

    ___________________________________________________________________________

    Nafn, fæðingardagur og heimilisfang

    Arnór Jósefsson, 5. nóvember 1944, Bakkastaðir 29, 112 Reykjavík

    Menntun, aðalstarf, starfsferill

    Gagnfræðapróf

    Innra eftirlit birgða frá 2005 – dagsins í dag

    Verslunarstjóri í varahlutaverslun frá 1971-2005

    Eignarhlutir í félaginu sem og í öðrum tengdum félögum.

    Arnór á 16,13% hlut í Brimborg ehf

    Önnur hagsmunatengsl við félagið svo sem kaupréttarsamningur eða aðilar að umbunarkerfi

    Nei, en mögulegt í samræmi við starfskjarastefnu

    Hagsmunatengsl við helstu viðskipta- og samkeppnisaðila félagsins

    Engin


    Upplýsingar um hvaða stjórnarmenn eru óháðir félaginu og stórum hluthöfum.
    Enginn stjórnarmaður í Brimborg er óháður því allir eiga þeir hlut í félaginu, utan einn, sem er tengdur stórum hluthafa. Fyrirtækið er í meirihlutaeigu Jóhanns J. Jóhannssonar og fjölskyldu hans og eru allir stjórnarmenn, utan einn, einnig starfsmenn fyrirtækisins.

  11. Helstu þætti í árangursmati stjórnar.
    Árleg markmið sbr. fjárhagsáætlun.

  12. Upplýsingar um forstjóra Brimborgar og lýsing á helstu skyldum hans.
    Egill Jóhannsson er forstjóri fyrirtækisins. Egill er fæddur í Reykjavík 5. Júní 1963 og sonur stofnanda fyrirtækisins, Jóhanns J. Jóhannssonar og Margrétar Egilsdóttur. Egill á 24,64% hlut í Brimborg. Egill útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands 1991. Egill hóf störf sem gutti hjá Brimborg með skóla eða 14 ára gamall. Fyrsta starfið var þrif á bifreiðum og má segja að Egill hafi nánast snert á öllum störfum fyrirtækisins frá unga aldri. Í dag situr Egill í aðalstjórn Brimborgar og hefur gegnt starfi forstjóra frá 1999 til dagsins í dag. Þar á undan var hann markaðsstjóri Brimborgar eða frá 1991-1999 og þar á undan gegndi hann starfi sem forstöðumaður upplýsingatæknideildar Brimborgar eða frá 1983 – 1991.
    Helstu skyldur forstjóra eru þær að hann annast daglegan rekstur félagsins og í þeim efnum fara eftir þeirri stefnu og fyrirmælum sem stjórn gefur. Frekari lýsingu á skyldum forstjóra má sjá undir starfsreglur stjórnar HRM-L-25 í gæðakerfi fyrirtækisins eða á heimasíðu fyrirtækisins undir stjórn – og aðalskipurit.

  13. Upplýsingar um brot á lögum og reglum sem viðeigandi eftirlits- og eða úrskurðaraðili hefur ákvarðað.
    Engar kvartanir eða athugasemdir hafa borist Brimborg frá viðskiptavinum eða öðrum vegna ávirðinga um brot fyrirtækisins eða starfsmanna hans á lögum eða reglum sem um starfssemi fyrirtækisins gilda, Þess má geta að félagið hefur það fyrir reglu að benda viðskiptavinum sem kvarta yfir þjónustu félagsins á rétt sinn til að bera úrlausn félagsins undir Neytendastofu, Félag Íslenskra bifreiðaeigenda, Neytendasamtökin eða aðra þá aðila sem viðskiptavinur telur að geti gætt hagsmuna hans. 

  14. Fyrirkomulag samskipta hluthafa og stjórnar.
    Fyrirkomulag samskipta þessara tveggja hópa er nokkuð einfalt hjá Brimborg enda eru fjórir af fimm stjórnarmönnum Brimborgar hluthafar í fyrirtækinu og einnig starfsmenn þess.
    Brimborg birtir fréttir af starfssemi sinni á heimasíðu fyrirtækisins www.brimborg.is og www.max1.is

[ Stjórn og aðalskipurit » ]

[ Starfsreglur stjórnar Brimborgar » ]

Starfskjarastefna Brimborgar » ]

 

 

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli